Comments

Pages: First Page ... 2 3 4 5 6 7 8 ... Last page

brandon
Story: The Quest for the Legends (IALCOTN)
Chapter: 1

that teacher is mean

[06/06/2012 18:12:34]

blazheirio889
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 61

In this line:

"“So,” Mewtwo said after a pause, slowly, “supposing Chaletwo does come for me, what will happen if I do not go with him?”"

Doesn't Mewtwo mean Chalenor?

Reply: Whoops. Fixed.

[04/06/2012 22:15:14]

ziberoo
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 61

Wait, did I miss something or is Mewtwo referring to Mew as a she, and Chaletwo referring to Mew as a he?

Reply: And May refers to Mew as an it. In the world of this fic, Mew is genderless and has no pronoun preference; any pronoun is acceptable, and which one is used depends on the character speaking. Entei also used 'she' for Mew in chapter 51 (where this was commented on), and in some backstory material I've written from Mew's point of view, the pronoun used in the narration flips between scenes.

Some other legendaries are like that as well, but Chaletwo uses 'he' as a default, and Mark (and thus the narration) pretty much picked that up from him.

[04/06/2012 21:45:49]

mamma
Story: The Fall of a Leader
Chapter: 2

Góður kafli. Þetta líkist meira og meira Þriðja ríki Hitlers. Og skemmtilegt hvernig þú lýsir keleríi dýra. Minnir á hesta að klóra hver öðrum á makka eða mjöðm með tönnunum (er búin að steingleyma hvað það heitir).

[02/05/2012 12:18:17]

mamma
Story: The Fall of a Leader
Chapter: 1

Fínn kafli. Skemmtilegt hvernig þú lýsir áti rándýra á nýveiddri og hrárri bráð. Við manneskjur erum rándýr sem eru alla jafna í litlum tengslum við þetta ferli. Þó sumir veiði, þá er bráðin geymd, verkuð, elduð og þá loks borðuð með hnífapörum.

[17/04/2012 18:37:27]

Iris
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 60

This is a really nice story! When are you gonna update, Dragonfree!?

ARGHG

Reply: It probably won't be too long. You can follow the progress with the next chapter on the Quest Blog (the top is up-to-date with the current status).

[14/04/2012 19:46:05]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 7

Skemmtilegt að lesa um þennan atburð frá hinni hliðinni.

[11/04/2012 17:43:41]

FlameTrainer13
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 53 Extra

Oh, gosh. This really makes me laugh. Especially the part where Taylor thanks Mew for bringing him life, which points out that even HE knew that he didn't have one. I wonder how many MarkXMay shippers squeed before they realized this wasn't cannon. :)

[10/04/2012 02:57:24]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 6

Mew sem sagt talar ekki, nema telepatískt?
Hvað var aftur síðasta siðferðislögmál Scytheranna sem Razor var ekki búinn að brjóta?

Reply: Mew gæti svo sem talað upphátt á sama tungumáli og aðrir pokémonar, en pokémonar sem geta átt hugræn samskipti gera það frekar þar sem það er þægilegra.

Síðasta lögmálið var að valda ekki óþarfa þjáningu, sem felur einkum í sér að veiða aðeins sér til matar og veita bráðinni skjótan dauða.

[09/04/2012 13:00:38]

FlameTrainer13
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 11

Did you know that you left out Dratini in recap of Mark's team last chapter, and you left out Gyrados this chapter? I get why you would leave out Gyrados this chapter (with there being no water and all), but I just thought I'd let you know in case you didn't mean for it to happen. Thanks!

Reply: Dratini wasn't mentioned because so far as Mark knew, he didn't have any particular issues. It wasn't a recap of Mark's team so much as a recap of the issues of Mark's team.

[06/04/2012 03:33:16]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 5

Mér finnst ýmislegt ótrúverðugt við þessa sögu, þó hún sé að mörgu leyti mjög heillandi, um leið og hún er óhugguleg. Þunglyndið, sjálfseyðingarhvötin, sjálfsmorðstilraunirnar, eru óhuggulegar. Það eru heillandi pælingar í því hvernig þú lýsir hugarástandi þess þunglynda og lífsleiða. En það sem er ótrúverðugt, er að pokemon sem hefur drepið mann og marga pokemona og étið, skuli ekki ráðast á Rob og pokemona hans, þó Rob hafi handsamað hann óviljugan.

Ein spurning, eða þú mátt rifja upp fyrir mig: Af hverju getur Shadowdart aldrei fyrirgefið honum lokaorðin, hver voru aftur lokaorðin?

Reply: Það kom fram fyrst þegar hann vaknaði að Rob fangaði hann í sérstakan pokébolta sem kemur í veg fyrir að hann komist í burtu hvort eð er, svo það myndi þjóna litlum tilgangi að drepa hann. Þar að auki finnst honum hann ekki hafa neitt líf til að snúa aftur til. Hann sér engan tilgang í raunverulegri mótspyrnu eða baráttu; hann hefur ekki lífsviljann í að berjast fyrir frelsi sem hann telur sig ekki eiga skilið, þótt hann hati í byrjun aðstæðurnar sem hann er í. Það kemur málinu ekki við hvort hann gæti (líkamlega eða andlega) drepið þau ef hann ákveddi það; hann er ekki í andlegu ástandi til að ákveða eða framkvæma neitt til að byrja með. Enda eyðir hann mestöllum kaflanum, eftir að reiðin og óttinn sem hann fann fyrir rétt eftir að Nightmare var náð hafa hjaðnað, í að sitja og hata sjálfan sig.

Lokaorð Razors til Shadowdarts (reyndar ekki síðustu orðin sem hann reyndi að segja við hann, sem er ekki nógu skýrt) voru tilraun til að brjóta hann niður og strá salti í sárin eftir hvað Shadowdart gekk illa með fyrstu bráð sína.

[31/03/2012 21:25:44]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 4

Flott saga, og nauðsynlegt að fá þennan bakgrunn um þau skötuhjú. Börðust þau ekki í stóru keppninni?

Eina athugasemdin sem ég hef, er að Shadowdart talar með rottuna í munninum, sem er frekar óraunverulegt.

Reply: Þau börðust í "Pokémon Frenzy Tournament", sem var ekki beinlínis stór keppni, en snýst um að pokémonar berjist þjálfaralausir.

Þú áttar þig væntanlega á að sagan er ekki búin þarna? Hljómar pínulítið eins og þú sért að líta á þetta sem endinn, sem það er ekki.

[18/03/2012 10:26:24]

LiliTriton
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 60

Love it! :D I can't wait till the next chapter!

[17/03/2012 09:39:32]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 3

Lýsingin á þróun pokemons er svipuð umbreytingu lirfu í púpu í fiðrildi, ekki satt?

Áhugaverð setning í lok undirkafla um að descitharnir myndu ekki komast yfir, heldur læra að fela. Flottur endir.

Svo finnst mér gaman að bera saman dýr sem fæðast með veiðieðli, og allir leikir unganna eru undirbúningur. Pokemonar virðast ekki fæðast með þetta eðli, heldur læra þeir það. Og þar sem þeir tala og skilja tungumál annarra pokemona og manna, þá verður miklu meiri áskorun fyrir þá að drepa sína fyrstu bráð. Menn sem læra að drepa t.d. lax eða rjúpu, skilja ekki tungumál laxins eða rjúpunnar. Svo þeir finna aldrei til með þeim á sama hátt. Í rauninni eru pokemonarnir (alla vega þessi tegund), þjálfaðir morðingjar. Því það heitir morð þegar þú drepur einhvern sem þú skilur og átt að geta fundið til með.


Reply: Þróun pokémons er hraðari og meira sjónarspil, en jú, "þróun" pokémona svipar mun meira til myndbreytingar skordýra en líffræðilegrar þróunar. Enda safnaði uppfinningamaður hugmyndarinnar um Pokémon skordýrum þegar hann var barn og langaði að endurskapa slíka skordýrasöfnun í tölvuleikjaformi.

Þeir fæðast vissulega með veiðieðli, og leikir þeirra snúast að mestu leyti um bardaga og þar með veiðar. Málið er hins vegar að þegar lífverur eru orðnar nógu greindar til að stjórnast af hærri hugarferlum en ekki hreinni eðlishvöt, þá flækist málið. Eitt af því sem ég vildi taka á í þessari sögu var hugmyndin um rándýr sem eru fær um samúð - hvernig gætu þau tekið á misræminu milli eðlislægrar þarfar sinnar fyrir að éta og hæfileikans til að finna til með fórnarlömbum sínum?

Ein leið er að líta svo óhagganlega á bráðina sem "hina" að samúðin hverfur, og það er það sem gerist oft í mannlegum átökum - fólk hættir að líta á andstæðinga sína sem fólk og verður þar með fært um hræðileg grimmdarverk gegn þeim. En hér ímyndaði ég mér samfélag sem tekur allt öðruvísi á vandanum. Þeir hætta ekki að líta á bráðina sem einstaklinga, heldur er í stað þess barið í þá að óttast ekki dauðann til að byrja með, á þeim grundvelli að þú getir drepið án hræsni ef þú ert óhræddur við að verða drepinn sjálfur. Út frá þessari réttlætingu snýst síðan stór hluti samfélags þeirra um að sanna að þeir óttist ekki dauðann.

Þar sem þeir eru rándýr og lifa í heimi þar sem öll raunhæf bráð er viti borin komast þeir ekki beinlínis hjá því að fremja morð, í mannlegum skilningi (annað sem mér finnst mjög áhugavert við hugmyndina um greind rándýr). Þeirra skilgreining á morði er því önnur og snýst um að brjóta gegn óskrifuðum reglum. Framhaldssagan (The Fall of a Leader) fer dýpra í heimspekina á bak við hugmyndir þeirra um siðferði, enda hafði ég mjög gaman af að velta henni fyrir mér.

(Og nei, þeirra heimspeki er ekki einhverskonar endurspeglun á minni eigin.)

[14/03/2012 17:29:51]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 2

Skemmtileg goðsagan um skýin, mánann og sólina.

[13/03/2012 12:17:03]

mamma
Story: Scyther's Story
Chapter: 1

Þetta er nú frekar beint af augum. Ekki mikið um það að segja. Virkar mjög kuldalegt samfélag.

[11/03/2012 15:42:49]

Unknown
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 60

Wow!! Razor finally goes back to his past! I actually remembered really clearly his whole backstory - well, the general idea any way. It's amazing how Shadowdart turned out like that, but I geuss that's what something like the Code does to you. Like in real life. It was melancholy, expecially when Stormblade was sitting there, looking in the stars, and it fit.
I'm glad Razor's finally seeing new things, like with the Code. I was scared he actually might leave, but thank goodness he's staying. He sounds like he's going to be happier now.

[12/02/2012 01:07:00]

Gravey
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 60

Nice job! Nightmare will make a great leader, even though there are a few Scythers who clearly won't like her.

Nightmare's mindset made my head spin for a bit too... o_O

[04/02/2012 19:03:18]

ShadowKaiserin
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 53 Extra

LOL! God, I should've read this sooner. This is hilarious, might I suggest handing a copy of this out to everyone who believes these two should get together?

[29/01/2012 15:28:27]

mamma
Story: The Quest for the Legends (ILCOE)
Chapter: 59

Ágætur kafli, en mér fannst hann samt svolítið ruglingslegur.
Ég átti erfitt með að skilja t.d. stat approximation og crazy stats. Hvað er þetta stats? Er það hvar pokemonarnir eru staðsettir þá stundina? Spurningamerkin sem koma fram á skjánum þegar Mark flettir upp á goðsagnapokemonunum, koma þau af því það er búið að ná þeim?

Skildi ég rétt að Puragon er ekki ístýpa, en lítur út fyrir það. Hún hefur aðlagast ís og eldi, en í grunninn er hún fljúgandi dreki?

Ég hef áhyggjur af því að þau eru að missa pokemona núna þegar þau þurfa á öllu sínu að halda til að ná síðustu goðsagnapokemonunum. Nú er Scyther líka farinn.

Reply: Stats er stytting á statistics og merkir í þessu samhengi tölur yfir hversu öflugur viðkomandi pokémon er á mismunandi sviðum, svo sem vöðvastyrk, þoli, viðbragðsflýti og svo framvegis. Pokédexið getur mælt eða áætlað þessa hluti þegar pokémon er fangaður. "Crazy stats" vísar til þess að þessar tölur séu fáránlega háar miðað við það sem gengur og gerist, enda eru goðsagnapokémonar sérlega öflugir.

Pokédexið hefur innbyggð gögn um þekkta pokémona, þannig að ef það skynjaði til dæmis Scyther þá myndi standa "Scyther" á þessum lista sem Mark var að skoða. Það hefur hins vegar ekki innbyggð gögn um goðsagnapokémonana, svo þeir birtast sem spurningamerki á listanum; Mark veit bara hvaða spurningamerki er hvað út frá gögnunum sem standa.

Þetta er nokkuð rétt túlkað hjá þér. Málið er sem sagt að Raudra lítur út fyrir að vera eldtýpa og notar aðallega eldárásir, og Puragon lítur út fyrir að vera ístýpa og notar aðallega ísárásir, en þær eru báðar flug- og drekatýpur, sem merkir að þeirra helsti veikleiki eru ísárásir, þrátt fyrir að bæði eld- og ístýpur hafi gott þol gagnvart ísárásum.

Það er ekki ennþá víst að Scyther sé farinn fyrir fullt og allt; það kemur í ljós í næsta kafla, sem er frá hans sjónarhorni.

[15/01/2012 10:43:33]

Pages: First Page ... 2 3 4 5 6 7 8 ... Last page